09. maí 2012
Námskeið er varða byggingar hjá Iðunni - fræðslusetri
Byggingafræðingafélaginu berast reglulega upplýsingar um námskeið og fræðslufundi sem henta byggingafræðingum vel í endurmenntun sinni.
Í maí eru eftirfarandi námskeið í boði hjá Iðunni sem vakið gætu áhuga byggingafræðinga og fjalla um vistvænar áherslur í byggðu umhverfi:
Vistvæn byggingarefni 8. og 10. maí kl. 16:00-20:00
Veðurfar og byggt umhverfi 14. og 15. maí kl. 16:00-20:00
Dagsbirta og vistvæn lýsing 21. og 23. maí kl. 16:00-20:00
Námskeiðin eru ætluð öllum aðilum í byggingargeiranum, þ.m.t. byggingafræðingum og öðrum hönnuðum. Námskeiðin samanstanda af verkefnum og fyrirlestrum sem gefa innsýn í viðkomandi málaflokk. Nánar (gjaldskrá, staðsetning o.fl.) má nálgast á heimasíðu Iðunnar, www.idan.is. Félagsmenn eru einnig hvattir til að skoða hin ýmsu námskeið sem Iðan heldur sem stuðla að góðri endurmenntun byggingafræðinga.
07. maí 2012
Menntanefnd BFÍ
Menntanefnd hefur verið skipuð af stjórn BFÍ fyrir starfsárið 2012-2013. Menntanefnd hefur m.a. það hlutverk innan BFÍ að skipa fulltrúa félagsins í fagráði vegna náms í byggingafræði við Háskólann í Reykjavík.
Menntanefndina skipa eftirtaldir:
Magnús Orri Einarsson - formaður nefndarinnar
Hjálmar Örn Guðmarsson
Ingvar Þór Gunnlaugsson
Davíð Friðgeirsson
Harpa Cilia Ingólfsdóttir
Þau Harpa Cilia Ingólfsdóttir og Hjálmar Örn Guðmarsson voru skipuð í ofangreint fagráð fyrir hönd BFÍ.
20. mars 2012
Ný stjórn tekin við eftir aðalfund
Aðalfundur BFÍ var haldinn þann 3. mars sl. Á aðalfundinum var kosin ný stjórn félagsins ásamt því að málefni og framtíð félagsins voru rædd.
Ný stjórn hefur hafið störf við þau mál sem brýnust þykja og varða hagsmuni byggingafræðinga á Íslandi. Áhersla hefur verið lögð á að koma menntamálum félagsins í góðan farveg en auk þessa vinnur stjórnin nú að því að marka sér stefnu í þeim fjölmörgu málum sem snúa að hagsmunum byggingafræðinga á Íslandi.
Félagar eru hvattir til að kynna sér reglulega málefni félagsins hér á heimasíðunni.
25. janúar 2012
Námskeið í tilboðs og áætlanagerð
Í samvinnu við Matsmannafélag Íslands.
Markmiðið með námskeiðinu er að kynna ítarlega alla þá þætti við mat á byggingarkostnaði sem nauðsynlegir eru til þess að reikna út tilboð í verklegar framkvæmdir.
Markmiðið með námskeiðinu er að kynna ítarlega alla þá þætti við mat á byggingarkostnaði sem nauðsynlegir eru til þess að reikna út tilboð í verklegar framkvæmdir.
23. desember 2011
Jólakveðja
Byggingafræðingafélag Íslands
Óskar félagsmönnum sínum gleðilegra jóla og gæfuríks
árs með von um bjarta framtíð og ljós í hjarta.
Við þökkum árið sem er að líða.
Stjórnin
Eldri fréttir


