27. apríl 2004
Fréttir af aðalfundi BFÍ 2004
Aðalfundur BFÍ 2004 var haldinn í Hraunholti Dalshrauni 15 Hafnarfirði 24. apríl s.l. Brynjar Einarsson formaður BFÍ setti fundinn, Reynir Kristjánsson var einróma samþykktur fundarstjóri og Sigurður Sverrir Gunnarsson fundarritari. Fundinn sátu 24 byggingafræðingar þ.a. 2 konur.
Formaður flutti skýrslu stjórnar og kom fram hjá honum að síðasta ár hefði verið að mestu hefðbundið hvað störf stjórnar félagsins varðar. Á starfsárinu fengu þrír byggingafræðingar löggildingu til þess að mega leggja inn aðaluppdrætti og tólf fengu leyfi til þess að mega kalla sig byggingafræðinga.
Brynjar greindi frá áformum Tækniháskóla Íslands um að koma á fót námsbraut í byggingafræði við skólann. Telur hann mjög mikilvægt að byggingafræðingar komi þar að málum og því sé stofnum menntanefndar á vegum félagsins tímabær.
Formaður sagði frá undirbúningi að útgáfu kynningarbæklings sem er á frumstigi og opnun nýrrar heimasíðu sem mun létta stjórninni alla vinnu við að koma efni á framfæri.
Brynjar tilkynnti að hann gæfi ekki kost á sér til áframhaldandi starfa og þakkaði samstarfið.
Ágúst Þór Gunnarsson gjaldkeri BFÍ las upp reikninga félagsins og voru þeir samþykktir án mikilla umræðna.
Tillaga stjórnar um lagabreytingu var samþykkt eftir málefnalegar umræður.
Tillaga stjórnar að uppstillingu til nýrrar stjórnar og framboð Kristinns Aðalbjarnarsonar til varamanns var samþykkt einróma.
Tillaga stjórnar um endurskoðendur var samþykkt.
Tillaga stjórnar um óbreytt félagsgjald 10.000 kr. var samþykkt.
Júlíus Finnsson nýkjörinn formaður BFÍ færði Brynjari Einarsyni rós sem þakklætisvott fyrir vel unnin störf undanfarin fjögur ár.
Undir liðnum önnur mál voru líflegar umræður og greinilegt er að byggingafræðingar líta björtum augum á framtíðina.
Að fundi loknum bauð félagið upp á sjávarréttasúpu og drykk að vali hvers og eins.


