31. janúar 2005
Fréttir af félagsfundi BFÍ 27. janúar 2005
Félagsfundur var haldinn 27. janúar s.l. í Fjörukránni Hafnarfirði. Á fundinn mættu 17 byggingafræðingar. Fundarstjóri var Hjálmar Örn Guðmarsson.
Júlíus Finnsson formaður BFÍ setti fundinn. Greindi hann frá störfum stjórnar frá síðasta aðalfundi. Kom fram í máli hans að um 160 byggingafræðingar væru nú á Íslandi. Af þeim eru 96 virkir í félaginu og mega kenna sig við það með skammstöfunni BFÍ með nafni sínu. Í byggingafræðinámi í Danmörku eru nú 102 einstaklingar og hafa aldrei verið fleiri. Í Horsens eru um 70, í Odense og Kaupmannahöfn eru 15 á hvorum stað og í Álaborg eru 2.
Það sem liðið er af stafsárinu hefur stjórnin gefið 20 einstaklingum jákvæða umsögn um að þeir megi nota starfsheitið byggingafræðingur og 3 einstaklingar hafa fengið löggildingu til að mega leggja inn byggingaruppdrætti til byggingarfulltrúa.
Þá kom fram í máli formanns að Eli Ellenderson frá VitusBering í Horsens hafi haft samband og boðist til að halda námskeið m.a. um gæðamál á Íslandi. Greindi Eli honum frá því að starfssemi VitusBering við Slotsgade og þar í grend væri öll að flytja út á Kr. Östergardsvej þar sem byggt hefur verið undir þá starfssemi.
Eftir að fundarmenn höfðu gætt sér á dýrindis þorramat greindu Reynir Kristjánsson og Hjálmar Ingvarsson frá könnunarviðræðum við Stéttarfélag verkfræðinga (SV), Samiðn og Verzlunarmannafélag Reykjavíkur (VR) varðandi inngöngi í fyrrnefnd félög eða rekstur á Stéttarfélagi byggingafræðinga. Kom fram í gögnum þeirra að félögin þrjú væru að bjóða svipaða þjónustu. Var formlega farið fram á inngöngu byggingafræðinga í SV en erindi okkar hafnað. Kom þó fram í svari SV að áhugi væri á því að taka málið aftur upp með vorinu.
Niðurstaða fundarins var sú að Reyni og Hjálmari var falið að reyna til þrautar að ná samningum við SV en að öðrum kosti að snúa sér til Samiðn og VR og fá á hreint hvað þau félög væri nákvæmlega að bjóða. Stefnt er að því að hægt verði að leggja samning fyrir annaðhvort aðalfund BFÍ eða SFB nú í vor.
Að lokum voru umræður um hagsmunamál byggingafræðinga s.s. laun, önnur starfskjör og endurmenntun.
ÁG


