14. mars 2005
Fréttatilkynning frá SFB
Á félagsfundi stjórnar BFÍ á Fjörukránni þann 27. janúar síðastliðinn var stjórn SFB með stutta kynningu á því starfi sem unnið hefur verið að frá stofnun og varpað var fram þeim möguleikum sem við sáum framundan og þeir þrír aðilar kynntir sem vænlegastir þóttu til samstarfs. Á þeim fundi var ákveðið að forgangsraða þessari vinnu og reyna til þrautar með samstarf við SV (Stéttarfélag Verkfræðinga). Stjórn SFB sendi síðan formlegt bréf þann 11.febrúar þar sem þess er farið á leit að Stéttarfélag Verkfræðinga taki að sér rekstur Stéttarfélags Byggingarfræðinga.
Meira má lesa um þessa frétt með því að smella á síðu SFB hér neðst vinstramegin á heimasíðunni.
Umsóknar eyðublað í SFB verður lagt út heimasíðuna um miðja þessa viku.


