03. maí 2005
Fréttir af aðalfundi BFÍ 2005
Aðalfundur BFÍ 2005 var haldinn í Litlu brekku, veislusal veitingahússins Lækjarbrekku við Bankastræti 30. apríl s.l.
Júlíus Finnsson formaður BFÍ setti fundinn, Páll Guðnason var einróma samþykktur fundarstjóri og Halldór Jón Karlsson fundarritari. Fundinn sátu 30 byggingafræðingar. Formaður flutti skýrslu stjórnar og kom fram hjá honum að síðasta ár hefði verið að mestu hefðbundið hvað störf stjórnar félagsins varðar. Haldnir voru átta stjórnarfundir og fjórir vinnufundir. Á starfsárinu fengu fjórir byggingafræðingar löggildingu til þess að mega leggja inn aðal- og bygginauppdrætti og þrjátíu fengu leyfi til þess að mega kalla sig byggingafræðinga.
Júlíus sagði frá máli 6 byggingafræðinga en umsóknum þeirra var hafnað um að sækja námskeið mannvirkjahönnuða á þeim forsendum að þeir hefðu ekki tilskilda starfsreynslu. Kærðu þeir höfnun prófnefndar mannvirkjahönnuða til úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála. Komst nefndin að þeirri niðurstöðu að málið væri ekki í verkahring nefndarinnar. Í framhaldinu úrskurðaði umhverfisráðuneytið að prófnefnd mannvirkjahönnuða hefði ekki verið heimilt að hafna byggingafræðingunum um þátttöku á fyrrnefndu námskeiði. Byggingafræðingar geta því strax eftir námslok sótt námskeið mannvirkjahönnuða og tekið próf en fá ekki löggildingu til að mega leggja inn aðal- og byggingauppdrætti fyrr en þeir hafa lokið starfsreynslutíma skv. byggingareglugerð.
Júlíus greindi frá því að stjórn BFÍ hefði uppi stór áform um að koma á fót endurmenntunarnámskeiðum og leita í því sambandi samstarfs við Arkitekta, tækni- og verkfræðinga.
Ágúst Þór Gunnarsson gjaldkeri BFÍ las upp reikninga félagsins og voru þeir samþykktir.
Júlíus gaf kost á sér sem formaður og var endurkjörinn einróma.
Tillaga stjórnar að uppstillingu annarra stjórnarmanna var samþykkt einróma.
Endurskoðendur BFÍ gáfu báðir kost á sér til áframhaldandi starfa og voru samþykktir en jafnframt var Páll Guðnason kjörinn varaendurskoðandi.
Tillaga stjórnar um óbreytt félagsgjald 10.000 kr. var samþykkt.
Undir liðnum önnur mál voru líflegar umræður og greinilegt er að byggingafræðingar líta björtum augum á framtíðina.
Að fundi loknum bauð félagið upp á sjávarréttasúpu.


