16. ágúst 2005
Golfmót BFÍ
Golfmót byggingafræðinga 2005 var haldið föstudaginn 12. ágúst s.l. á Þverárvelli að Hellishólum í Fljótshlíð að frumkvæði Elíasar Víðissonar byggingafræðings. Það var blíðskaparveður þegar 14 keppendur röltu út að fyrsta teig og Ágúst Þór gjaldkeri BFÍ sló fyrsta höggið um kl. 14:45.
Að loknum fyrstu 9 holunum var boðið upp á súpu með brauði í golfskála vallarins og skrafað um árangur leiksins m.a. hversu margir boltar hefðu týnst. Einn keppanda (nefnum engin nöfn) týndi öllum 11 boltunum sem hann kom með á mótið og varð að kaupa sér fleiri bolta í súpuhléinu. Þess skal getið að á flestum brautum þarf að slá yfir læk eða á og á einni braut er boðið upp á að fara tvisvar yfir sömu ána í fyrsta höggi.
Um kl. 21:45 höfðu allir lokið við 18 holur og var þá aftur gengið til golfskála og sest til borðs. Lyftu menn fljótlega glösum og skáluðu á danska vísu. Var nú framreiddur dýrindis matur, grillað lamb með gratineruðum kartöflum o.fl. Að loknum snæðingi á ljúffengum ís var tilkynnt um úrslit en þau voru eftirfarandi:
1. sæti með 32 stig: Ágúst Þór Gunnarsson
2. sæti með 30 stig: Sigurður Ágústsson
3. sæti Finnur Smári Kristinsson
Sátu menn lengi nætur og drukku að sið Gunnars og Njáls enda staddir í þeirra héraði.
Voru allir sammála um að mótið hefði tekist með ágætum og vonuðu að það yrði að hefð í starfi félagsins. Er Elíasi þakkað fyrir gott framtak.
Hægt er að skoða hvað er í boði á Hellishólum á slóðinni www.hellisholar.is
Til baka

