22. febrúar 2006
Frumvarpsdrög um mannvirki
Undanfarin misseri hefur á vegum umhverfisráðuneytisins verið unnið að heildarendurskoðun skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Nefnd sem hefur haft byggingarþátt þeirra til umfjöllunar hefur nú lokið við gerð fyrstu draga að frumvarpi til laga um mannvirki. Með bréfi dagsettu 20. janúar 2006 óskaði umhverfisráðuneytið eftir umsögn Byggingafræðingafélags Íslands vegna þessara draga. Félagið gaf umsögn sína með bréfi dagsettu 8. febrúar 2006.
Byggingafræðingafélag Íslands telur framkomin drög að lögum um mannvirki til mikilla bóta. Helst ber að nefna tilkomu Byggingarstofnunar en það að málefni mannvirkja heyri undir eina stofnun mun án efa gera alla stjórnsýslu markvissari.
Helstu athugasemdir félagsins lúta að starfsréttindum byggingafræðinga en þeim er skv. frumvarpsdrögunum einum stétta í hönnunargeiranum gert að sýna fram á fimm ára starfsreynslu, þar af minnst eitt ár hér á landi, til að geta hlotið löggildingu á meðan þriggja ára starfsreynsa er látin nægja öðrum. Í bréfi félagsins til ráðuneytisins er bent á þessa mismunun og tekið fram að látið verði reyna á hvort þetta standist jafnræðisreglu stjórnsýslulaga ef þessu verði ekki breytt.
Í frumvarpsdrögunum er gert ráð fyrir að byggingarnefndir verði lagðar niður en að meginþungi byggingareftirlits í landinu verði áfram í höndum sveitarfélagana. Þá er gert ráð fyrir faggiltum skoðunarstofum sem annist yfirferð hönnunargagna og framkvæmd úttekta. Gert er ráð fyrir að faggilding skiptist í þrjú stig, I-
Ekki er um endanlega tillögu nefndarinnar að ræða þar sem nauðsynlegt var talið að fá fram sjónarmið ýmissa aðila sem máli varðar áður en nefndin skilar endanlegri tillögu til ráðherra. Munu því ný frumvarpsdrög koma til umsagnar félagsins þegar búið verður að vinna úr athugasemdum hagsmunaaðila.
Mannvirkjalaganefnd er skipuð eftirtöldum einstaklingum:
Ingimar Sigurðsson, skrifstofustjóri umhverfisráðuneytinu, formaður, Ingibjörg Halldórsdóttir, lögfræðingur í umhverfisráðuneytinu Smári Þorvaldsson, deildarstjóri umhverfisráðuneytinu, Ágúst Þór Jónsson, verkfræðingur, tilnefndur af forsætisráðuneyti, Eyjólfur Bjarnason, tæknifræðingur, tilnefndur af Samtökum iðnaðarins, Magnús Sædal, byggingarfulltrúi, tilnefndur af Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Björn Karlsson, brunamálastjóri, tilnefndur af Brunamálastofnun.
Til baka

