10. apríl 2006
Fréttir af vinnu BFÍ vegna draga að lögum um mannvirki
Fundur var haldinn 3. apríl s.l. í umhverfisráðuneytinu þar sem sátu Ingimar Sigurðsson skrifstofustjóri og Ingibjörg Halldórsdóttir lögfræðingur fyrir hönd ráðuneytisins og Ágúst Þór Gunnarsson gjaldkeri, Júlíus Finnsson formaður og Svava B. Bragadóttir ritari fyrir hönd BFÍ. Á fundinum afhentu fulltrúar félagsins bréf og fóru ítarlega yfir eftirfarandi þætti:
1. Skólastig
2. Reglugerðir um nám í byggingafræði og tæknifræði
3. Upplýsingar um nám í bygginafræði
4. Prófgráðu
5. Starfsvettvang byggingafræðinga
6. Samanburð á námi í bygginafræði og námi í tæknifræði og arkitektúr
7. Kröfur BFÍ um breytingar á drögum að lögum um mannvirki
Það er skemms frá því að segja að okkur var ákaflega vel tekið og fundurinn hinn ánægjulegasti í alla staði. Nú er verið að fara yfir athugasemdir frá völdum aðilum og er áætlað að endanleg drög verði send út til umsagnar í maímánuði n.k.
Til baka

