14. maí 2006
Fréttir af aðalfundi BFÍ 2006
Aðalfundur BFÍ 2006 var haldinn í Kornhlöðunni, veislusal veitingahússins Lækjarbrekku við Bankastræti 29. apríl s.l.
Júlíus Finnsson formaður BFÍ setti fundinn, Ólafur Halldórsson var einróma samþykktur fundarstjóri og Halldór Jón Karlsson fundarritari. Fundinn sátu 17 byggingafræðingar. Formaður flutti skýrslu stjórnar og kom fram hjá honum að síðasta ár hefði verið að mestu hefðbundið hvað störf stjórnar félagsins varðar. Haldnir voru átta stjórnarfundir og fjórir vinnufundir. Á starfsárinu fengu 20 byggingafræðingar löggildingu til þess að mega leggja inn aðal- og bygginauppdrætti og 27 fengu leyfi til þess að mega kalla sig byggingafræðinga.
Júlíus gaf kost á sér sem formaður og var endurkjörinn einróma.
Tillaga stjórnar að uppstillingu annarra stjórnarmanna var samþykkt einróma, sjá stjórn.


