15. júní 2006

Drög að lögum um mannvirki


Nefnd á vegum umhverfisráðuneytisins sem hefur haft byggingarþátt skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 til umfjöllunar hefur ekki enn sent endanleg drög út til umsagnar hjá hagsmunaaðilum. Mikill fjöldi athugasemda og ábendinga barst nefndinni þegar hún leitaði umsagnar í febrúar s.l. við fyrstu drögum að lögum um mannvirki. BFÍ mun birta fréttir af málinu um leið og ný drög hafa borist félaginu.

Til baka