16. júní 2006

Árgjald BFÍ 2006


Sendir hafa verið út 156 greiðsluseðlar vegna innheimtu árgjalda BFÍ fyrir starfsárið 2006-2007 sem er frá 1. apríl - 31. mars. Gjalddagi er 1. júní og eindagi 30. júní.
Þeir sem greiða árgjaldið verða fullgildir félagar í BFÍ og mega kenna sig við félagið með skammstöfuninni BFÍ með nafni sínu eins og kveður á um í lögum félagsins.
Þeir sem ekki greiða árgjaldið teljast ekki félagar í BFÍ en skv. lögum félagsins ber stjórn þó að halda skrá yfir alla byggingafræðinga á Íslandi hvort heldur sem þeir kæra sig um að vera í félaginu eða ekki.
Sett hefur verið upp skrá hér á heimasíðunni yfir þá byggingafræðinga sem mega kenna sig við félagið með skammstöfuninni BFÍ með nafni sínu. Skráin verður uppfærð reglulega eftir því sem menn greiða árgjaldið.
Til baka