04. júlí 2006

Tillögur um nýja skipan skipulags- og byggingarmála


Nefndir sem umhverfisráðherra skipaði til að endurskoða gildandi skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 hafa unnið drög að frumvörpum um skipulags- og byggingarmálefni. Hér er um að ræða frumvarp til laga um mannvirki annars vegar og frumvarp til skipulagslaga hins vegar. Í frumvarpi til laga um mannvirki hefur í engu verið tekið tillit til athugasemda sem stjórn BFÍ gerði í febrúar s.l. Byggingafræðingar munu t.d. þurfa samkv. frumvarpinu 5 ára starfstíma til að fá löggildingu til að mega leggja fyrir teikningar en aðrar stéttir 3 ára starfstíma.  

Frumvarpsdrögin fela í sér tillögur að breyttri stjórnsýslu skipulags- og byggingarmála og er lagt til að þau taki gildi 1. janúar 2008. Umhverfisráðherra stefnir að því að leggja frumvörpin fyrir Alþingi á komandi haustþingi.

Frumvarpsdrögin eru aðgengileg á heimasíðu umhverfisráðuneytisins og er að öðru leyti vísað til þeirra varðandi efni þeirra, sjá http://www3.umhverfisraduneyti.is/frettir/nr/838

Frumvarpsdrögin hafa verið send til umsagnar fjölmargra aðila. Öllum er gefinn kostur á að koma á framfæri athugasemdum við frumvarpsdrögin fyrir 15. ágúst nk. Að loknum kynningartíma verður farið yfir umsagnir og athugasemdir sem berast ráðuneytinu og unnið úr þeim. Umsögnum og athugasemdum verður ekki svarað sérstaklega.

Umsagnir og athugasemdir sendist rafrænt til umhverfisráðuneytisins á netfangið: postur@umhverfisraduneyti.is

Til baka