30. júlí 2006
Umsögn BFÍ við lögum um mannvirki
BFÍ hefur falið Láru V. Júlíusdóttur hrl. að gera umsögn fyrir hönd félagsins um lög um mannvirki. Eftirfarandi atriði verða m.a. skoðuð:
Almennt:
Hvort ekki verði að telja það ámælisvert að tveir verkfræðingar og tveir tæknifræðingar skuli hafa setið í sjö manna endurskoðunarnefnd og þar af leiðandi haft meirihluta í nefndinni. Framkomin drög að lögum um mannvirki eru að mörgu leiti vilholl byggingarverkfræðingum og byggingartæknifræðingum á kostnað arkitekta og byggingafræðinga.
20. gr. liður c. Skoðunarmaður III.
Hér vantar að geta byggingafræðinga þar sem þeir eru með jafngilda menntun og tæknifræðingar eða 210 ECTS stig.
24. gr. liður c. Löggilding hönnuða
Hvers vegna eiga byggingarverkfræðingar og byggingartæknifræðingar að geta fengið löggildingu til að gera aðal- og byggingaruppdrætti ásamt tilheyrandi deiliuppdráttum sem er sérsvið arkitekta og byggingafræðinga? Ef þetta ákvæði á að haldast inni í lögunum þá verður að gera byggingafræðingum kleift að fá löggildingu á sérsviðum byggingarverkfræðinga og byggingartæknifræðinga. Að öðrum kosti er jafnræðis ekki gætt.
25. gr. liður c. Skilyrði fyrir löggildingu hönnuða
Hvort það sé ekki brot á jafnræði að ætla byggingafræðingum einum stétta fimm ára starfsreynslutíma og þar af eitt ár á Íslandi til að hljóta löggildingu? Byggingafræði er jafngilt nám og tæknifræði eða 210 ECTS stig. Bent skal á að nám í arkitektúr er einungis 7 mánuðum lengra en nám í byggingafræði og að lengd náms er engin trygging fyrir gæðum. Þá skal bent á að meirihluti nemenda í byggingafræði hafa iðnmenntun og starfsreynslu í byggingariðnaði.
27. gr. Starfsleyfi byggingastjóra
Í næst síðustu málsgrein á bls. 13 vantar að geta byggingafræðinga þar sem þeir hafa sambærilega menntun og tæknifræðingar. Byggingafræðingar eiga að geta orðið byggingastjórar skv. lið 2 í 4. mgr. 26. gr. engu síður en tæknifræðingar.
Öllum er heimilt að gera athugasemdir við frumvarp til laga um mannvirki og frumvarp til skipulagslaga og senda til umhverfisráðuneytisins fyrir 15. ágúst. Lögin eru aðgengileg á heimasíðunni www.umhverfisraduneyti.is
Einnig er hægt að senda athugasemdir til: julius@bygg.is og berglind@fmr.is


