27. september 2006

Fundur með umhverfisráðherra


Fulltrúar Byggingafræðingafélags Íslands mættu til fundar í umhverfisráðuneytinu 14. september s.l. og áréttuðu kröfur félagsins varðandi ákveðin atriði í drögum að lögum um mannvirki við háttvirtan umhverfisráðherra Jónínu Bjartmars og Ingimar Sigurðsson skrifstofustjóra.
Þau óskuðu eftir að félagið aflaði staðfestingar frá menntamálaráðuneyti Danmerkur á því að nám í byggingafræði (Bachelor of Architectural Technology and Construction Management) væri hliðstætt námi í tæknifræði (Civil Engineer) og gæfi námsgráðu á sama stigi. Félagið hefur sent ráðuneytinu bréf  dags. 19. ágúst 2002 frá menntamálaráðuneyti Danmerkur sem staðfestir framanritað. Þá hefur félagið sent annað bréf dags. 27. janúar 2006 frá menntamálaráðuneyti Danmerkur sem staðfestir að Vitus Bering Horsens megi kalla sig University College og að nám við skólann er "professional Bachelor- and diploma programmes".
Endurskoðunarnefndin hefur skilað drögum að lögum um mannvirki til ráðherra og varð hún ekki við neinum af okkar ábendingum. Í ráðuneytinu er þessa dagana verið að fara yfir athugasemdir og mun ráðherra leggja endanlegt frumvarp fyrir ríkisstjórn og Alþingi fljótlega eftir að þing kemur saman. Við verðum því að bíða og sjá hvernig endanlegt frumvarp kemur til með að líta út, því verði það okkur óhagstætt verðum við að fá því breytt í meðförum þingsins. Það getur orðið þungur róður!!!  
Til baka