29. september 2006
Kjarakönnun Stéttarfélags verkfræðinga 2006
Kjarakönnun SV 2006 er komin út. Í henni má eins og áður sjá laun fyrir árið 2005 og laun í febrúar 2006. Í könnuninni eru birtar ítarlegri niðurstöður en áður og niðurstöður leiða í ljós að heildarlaun eru að hækka um 9% milli áranna 2004 og 2005. Þá hækka heildarlaun í febrúar um 12% á milli áranna 2005 og 2006.
Félagsvísindastofnun HÍ sá um alla framkvæmd og úrvinnslu könnunarinnar. Í bæklingi með niðurstöðum könnunarinnar er að finna greiningu stofnunarinnar á kynbundnum launamun meðal þátttakenda.
Bækling með niðurstöðum í kjarakönnun SV 2006 má finna á heimasíðu SV sem er www.sv.is
Til baka

