05. desember 2006

Orðsending frá SFB


Ágætu félagsmenn

Nú er liðið ár síðan Stéttarfélag byggingafræðinga (SFB) undirritaði samstarfssamning við Stéttarfélag verkfræðinga (SV) og hófu þá fyrstu félagsmenn að greiða í stéttarfélagið, ásamt sjúkra- og orlofssjóð.

Eftir þetta fyrsta starfsár eigum við töluvert í land með að uppfylla skilyrði samnings um 50 virka félagsmenn greiðandi í SFB á hverjum tíma.

Einhver misskilningur hefur verið með hvert á að senda umsóknareyðublöð um inngöngu í SFB. Opnað hefur verið fyrir netfangið sfb@bfi.is og eru félagsmenn hvattir til að nota það til að koma umsóknum, ábendingum og fyrirspurnum til stjórnar.

Dráttur hefur verið á skráningu nokkurra umsókna, meðal annars vegna ofangreinds misskilnings, biður stjórn SFB félagsmenn afsökunar á því.

Að gefnu tilefni vill stjórn SFB hvetja félagsmenn sína til að fylla út beiðni um inngöngu í SFB, beiðnina má nálgast á vef Byggingafræðingafélagsins http://www.bfi.is undir krækju stéttarfélagsins.

Stjórn SFB

Til baka