08. mars 2007

Áríðandi ábending til byggingafræðinga


Að undanförnu hafa byggingafræðingar leitað til BFÍ eftir upplýsingum um réttarstöðu vegna uppsagna, heilsubrests eða slysa sem þeir hafa orðið fyrir. Í þessum tilfellum höfðu viðkomandi ekki gert ráðningarsamninga eða gengið í stéttarfélag og þar með ekki gerst aðilar að sjúkrasjóð sem vinnuveitandi greiðir í. Réttarstaða þessarra einstaklinga er vægast sagt mjög slæm og hafi þeir ekki keypt sér slysa og sjúkdómatryggingu er fjárhagslegt tjón mikið. Í lögum BFÍ eru engar heimildir til þess að greiða félagsmönnum bætur eða styrki enda það vart hlutverk fagfélags heldur miklu heldur stéttarfélags.

Stjórn BFÍ hvetur þá byggingafræðinga sem ekki hafa undirritað ráðningarsamninga til þess að reka á eftir því við vinnuveitanda sinn að slíkur samningur sé gerður. Jafnframt hvetur stjórnin byggingafræðinga til þess að ganga í Stéttarfélag byggingafræðinga eða önnur stéttarfélög og notfæra sér réttindi til aðildar að sjúkrasjóðum.  

Til baka