09. mars 2007

Framlag til lífeyrissparnaðar hækkar í 12%


Um síðustu áramót tók gildi breyting á lífeyrissjóðalögum sem mælir fyrir um hækkun lágmarksiðgjalds til öflunar lífeyrisréttinda. Fyrir var iðgjaldið 10% en er nú 12%. Launþeginn greiðir áfram 4% en framlag launagreiðanda hækkar úr 6% í 8%. Breytingin nær einnig til sjálfstætt starfandi einstaklinga.

Áfram er launþegum og sjálfstætt starfandi heimilt að leggja fyrir í viðbótarlífeyrissparnað allt að 4% eigið framlag auk þess sem flestir launþegar eiga rétt á 2% mótframlagi launagreiðanda. Bent skal á að ef viðbótalífeyrissparnaður er tekin út eftir 67 ára aldur þá skerðast bætur Tryggingarstofnunar ríkisins. Er því hagstæðast að taka sparnaðinn út á aldursbilinu 60 - 67 ára. 

Til baka