01. september 2007
Metaðsókn í byggingafræði í Horsens
Á haustmisseri byrjuðu 27 Íslendingar nám á fyrstu önn í byggingafræði við Vitus Bering í Horsens. Mun þetta vera stærsti hópur Íslendinga sem hefur nám á fyrstu önn í byggingafræði við skólann. Ekki liggur fyrir heildarfjöldi Íslendinga sem stundar nám í byggingafræði í Danmörku en ætla má að þeir séu um 150. Í dag eru um 250 byggingafræðingar á Íslandi þannig að innan fárra ára verðum við orðin hátt í 400. Til baka


