19. september 2007
Vitus Bering Danmark verður VIA University College
Í janúar 2008 tekur til starfa nýr háskóli VIA University College á Jótlandi í Danmörku. VIA University College verður til við sameiningu Jysk Center for Videregående Uddannelse, cvu vita, Vitus Bering Danmark, CVU Midt-Vest og CVU alpha en þessi menntun er skilgreind í danska menntakerfinu sem "de mellemlange videregående uddannelser". Markmið sameiningar er að geta boðið betri menntun en áður. Nánari upplýsingar má lesa á: www.viauc.dk.
Til baka

