10. október 2007
Nám í byggingafræði við Háskólann í Reykjavík
Við tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík er nú verið að kanna forsendur fyrir því að fara af stað með nám í byggingafræði. Ef af verður, þá yrðu fyrstu nemendurnir teknir inn haustið 2008. HR óskaði eftir því að BFÍ skipaði fulltrúa í undirbúningsnefnd og eiga þar sæti af hálfu BFÍ Ágúst Þór Gunnarsson, Kristinn Aðalbjörnsson og Magnús Ingvarsson. Nefndin þarf að taka afstöðu til nokkurra álitamála eins og t.d. hvort námið eigi að vera á íslensku eða ensku, hvort um verði að ræða fjarnám eða staðarnám og innihald námsskrár. Svo á eftir að reyna á hvernig ganga muni að fá kennara við námsbrautina. Frekari fréttir af undirbúningi verða birtar hér á heimasíðunni jafnóðum og eitthvað gerist.
Til baka

