10. október 2007

Upplýsingar til nýútskrifaðra byggingafræðinga


Starfsheitið byggingafræðingur er lögverndað. Þeim sem lokið hafa prófi í byggingafræði er bent á að sækja um leyfi iðnaðarráðuneytis til þess að mega nota starfsheitið. Fylla þarf út umsóknareyðublað og skila með því staðfestu afriti af prófskírteini. Ráðuneytið leitar umsagnar BFÍ um hvort innsend gögn uppfylli skilyrði um að nám hafi verið stundað frá viðurkenndum skóla. 
Reynist gögn vera í lagi gefur félagið jákvæða umsögn og viðkomandi er skráður í félagið.
 
Veffang iðnaðar- og viðskiptaráðuneytis er: http://www.idnadarraduneyti.is/
Til baka