29. janúar 2008

Mikil fjölgun í Stéttarfélagi byggingafræðinga


Í lok janúar voru félagar í Stéttarfélagi byggingafræðinga 85 talsins og hefur þeim því fjölgað mikið að undanförnu.

Stéttarfélag byggingafræðinga (SFB) er með samstarfssamning við Stéttarfélag verkfræðinga (SV). Samningurinn felst í því að SV veitir félagsmönnum SFB þjónustu eins og um eigin félagsmenn væri að ræða. Félagar í SFB gerast sjóðfélagar í Sjúkra- og orlofssjóði SV.

Stjórn Stéttarfélags byggingafræðinga hvetur félagsmenn til að tilkynna launagreiðendum í hvaða stéttarfélagi þeir eru og gefa þeim upplýsingarnar sem koma fram hér fyrir neðan:

Nauðsynlegar upplýsingar um félagsgjöld fyrir launagreiðendur (mikilvægt er að taka fram að greitt sé fyrir byggingafræðing): Tilgreina skal nafn, kennitölu, heimilisfang, síma og netfang bæði félagsmanns og fyrirtækis. 

Heimilisfangið SFB er:
Stéttarfélag byggingafræðinga
c/o Stéttarfélag verkfræðinga
Engjateigur 9
105 Reykjavík

Félagsgjald: 1.500 kr/mán. Sjúkrasjóður: 1% Orlofssjóður: 0.25%

Kennitala SV: 620269-6629 Banki: 1150-26-6393 Sími: 568 9986 Fax.nr: 588 6309 Netfang: sv@sv.is

Allar nánari upplýsingar veitir Þrúður G. Haraldsdóttir sviðsstjóri kjaramála Stéttarfélags verkfræðinga

Til baka