11. mars 2008

Byggingafræði BSc hefst við Háskólann í Reykjavík haustið 2008


Byggingarfræði er 60 eininga fjarnám með staðarnámslotum að loknu 45 eininga námi í byggingariðnfræði.
 
Haustið 2008 hefst nám í byggingarfræði við Háskólann í Reykjavík.  Byggingarfræði við HR er 105 eininga nám til BSc gráðu og er námið eingöngu ætlað þeim sem lokið hafa sveinsprófi í byggingariðngrein.  Um er að ræða 60 eininga viðbót við byggingariðnfræði.  Kennt er í fjarnámi með verkefnalotum í staðarnámi.

Inntökuskilyrði:
Fyrir þá sem lokið hafa 45 eininga námi í byggingariðnfræði (6 annir).
 
Fyrirkomulag náms er eftirfarandi:  
7. – 11. önn: Bóknám  -  7,5 einingar á önn. Verkefnavinna er um 2/3 af námsvinnunni (5 ein. á önn) og fagtengd námskeið um 1/3 (2,5 ein. á önn). Verkefnavinnan byggist að hluta á námsefni fyrri anna og að hluta á nýju efni.  
12. önn:  Starfsþjálfun og skýrslugerð  -  12
,5 einingar
13. önn:  Lokaverkefni  -  10 einingar

Til baka