03. maí 2008

Fréttir af 40 ára afmælisfagnaði BFÍ


Afmælisfagnaður í tilefni af að 40 ár eru liðin frá stofnun BFÍ var haldinn á 20. hæð í glerturninum Smáratorgi 3 Kópavogi í kjölfar aðalfundar félagsins. Mæting var mjög góð eða um 150 manns. Fordrykkur var borinn fram um kl. 18 og var staðið og spjallað uns hátíðarkvöldverður hófst um 19:30. Júlíus Finnsson formaður félagsins bauð fólk velkomið og fór stuttlega yfir tilefni fagnaðarins.  Ágúst Þór Gunnarsson hélt hátíðarræðu og fór yfir aðdragandann að stofnun félagsins og helstu viðburði í sögu þess. Verður birtur hér hluti af því sem fram kom í máli hans þeim til fróðleiks sem ekki mættu:

„Upp úr 1960 hófu íslenskir byggingariðnaðarmenn, einkum húsasmiðir og múrarar, að sækja sér framhaldsmenntun í húsahönnun til Danmerkur sem gaf danska starfsheitið bygningskonstruktør. Fyrst var um tveggja og hálfs árs nám að ræða en 1965 var námið lengt í þrjú og hálft ár.

Segja má að meðgangan að stofnun BFÍ hafi verið 9 mánuðir og ekki þrautalaus. Þann 17. mars 1967 komu saman 15  bygningskonstruktører á hótel Loftleiðum til þess að stofna Félag tækniarkitekta. Í fundargerð stofnfundar kemur fram að menn voru hræddir um að til málshöfðunar gæti komið vegna notkunar orðsins arkitekt en rétt væri að láta á það reyna. Tveimur dögum seinna var haldinn framhaldsstofnfundur þar sem samþykkt var að semja við Pál S. Pálsson hrl. um ráðgjöf og aðstoð. Á félagsfundi sem haldinn var í árslok eða 30. desember sama ár var lagt fram bréf frá Jóhanni Hafstein í iðnaðarmálaráðuneytinu þar sem því er hafnað að bygningskonstruktører fái að nota starfsheitið tækniarkitekt. Á þessum tíma lá fyrir Alþingi frumvarp til byggingarlaga en þar átti að setja inn í fyrsta skipti þau starfsheiti sem rétt hefðu til þess að árita aðaluppdrætti. Nú var að duga eða drepast. Þrír félagsmenn fóru á fund iðnaðarmálaráðherra sem ítrekaði afstöðu ráðuneytisins vegna andstöðu frá Arkitektafélagi Íslands en lofaði stuðningi við starfsheitið bygginga-fræðingur. Komust menn að þeirri niðurstöðu að til þess að eiga möguleika á að fá lögverndað starfsheiti inn í ný byggingalög væri rétt að hætta við starfsheitið tækniarkitekt. Örfáum dögum síðar á félagsfundi Félags tækniarkitekta sem haldinn var í félagsheimili Karlakórs Reykjavíkur 6. janúar 1968 kl. 17:30 var eftirfarandi tillaga samþykkt með 14 athvæðum gegn einu. „Fundur haldinn í Félagi tækniarkitekta samþykkir að stofnað verði Félag byggingafræðinga. Sama dag á sama stað kl. 20:30 eða 3 klst. síðar var Byggingafræðingafélag Íslands stofnað af 14 ungum mönnum. Félaginu voru sett lög og eftirtaldir kosnir í fyrstu stjórn þess: Jón Kaldal formaður, Ásmundur Jóhannsson, Ágúst Höskuldsson, Steinar Geirdal, Jón Róbert Karlsson, Baldvin Einarsson og Þorgils Axelsson.  Steinar Geirdal sem sat í fyrstu stjórn BFÍ  var meðal veislugesta og færði félagið honum dálitla gjöf sem þakklætisvott. Góður vinur margra bygginga-fræðinga Johan Eli Ellendersen frá VIA University College í Horsens var sérstakur gestur félagsins en hann hefur óþreytandi kynnt byggingafræði á Íslandi mörg undanfarin ár og aðstoðað marga sem hafa farið til náms í Danmörku. Félagið færði honum dálitla gjöf sem þakklætisvott og hann hélt þakkarræðu og færði félaginu forláta kaffikönnu. Veislustjóri kvöldsins var háðfuglinn Gísli Einarsson fréttamaður og hélt hann tveggja tíma brandararæðu eins og honum einum er lagið. Að borðhaldi loknu spilaði BTH bandið en það er skipað byggingafræðingum sem voru saman í námi í Danmörku.

Til baka