03. maí 2008

Fréttir af aðalfundi BFÍ 2008


Aðalfundur BFÍ var haldinn laugardaginn 19. apríl s.l. á 19. hæð í glerturninum Smáratorgi 3 Kópavogi. Fundinn sátu 50 byggingafræðingar. Júlíus Finnsson formaður BFÍ setti fundinn. Brynjar Einarsson var samþykktur fundarstjóri og Berglind B. Sigvaldadóttir fundarritari. Formaður flutti skýrslu stjórnar og kom m.a. fram hjá honum að síðasta ár hefði verið að mestu hefðbundið hvað störf stjórnar félagsins varðar. Haldnir voru átta stjórnarfundir og margir vinnufundir. Talsverð vinna fór í að gera umsögn vegna frumvarps um lög um mannvirki sem nú er til meðferðar í umhverfisnefnd Alþingis. Á starfsárinu fengu 12 byggingafræðingar löggildingu til þess að mega árita aðal- og bygginauppdrætti og 33 fengu leyfi til þess að mega kalla sig byggingafræðinga. Virkir félagar sem mega kenna sig við félagið með skammstöfuninni BFÍ eru nú 150 en á skrá eru 250. Ágúst Þór Gunnarsson gjaldkeri BFÍ las upp reikninga félagsins og voru þeir samþykktir. Júlíus Finnsson var endurkjörinn formaður með lófaklappi. Tillaga stjórnar að uppstillingu annarra stjórnarmanna var samþykkt. Endurskoðendur BFÍ voru kostnir Hjálmar Örn Guðmarsson, Sigurður Ólafsson og til vara Ingvar Gunnlaugsson. Tillaga stjórnar um óbreytt félagsgjald 10.000 kr. var samþykkt. Ákveðið var af fundarmönnum að stjórn BFÍ geri heildarendurskoðun á lögum félagsins í samráði við lögmann. Stefnt er að því að endurskoðuð lög verði lögð fyrir aðalfund á næsta ári. 

Nýkjörin stjórn hefur haldið sinn fysta fund og skipt með sér verkum en hún er þannig skipuð:

Formaður                      Júlíus Finnsson

Varaformaður                 Páll Guðnason

Gjaldkeri                       Ágúst Þór Gunnarsson

Ritari                            Berglind Björg Sigvaldadóttir

Meðstjórnandi               Sigurður Sverrir Gunnarsson

Varamaður                    Kristinn Aðalbjörnsson

Varamaður                    Halldór Arnarson

Til baka