19. apríl 2010
Fréttir af aðalfundi BFÍ 2010
Aðalfundur BFÍ var haldinn laugardaginn 17. apríl s.l. í Lækjarbrekku Bankastræti 2 Reykjavík. Fundinn sátu 14 byggingafræðingar. Júlíus Finnsson formaður BFÍ setti fundinn. Ingvar Gunnlaugsson var samþykktur fundarstjóri og Berglind Björg Sigvaldadóttir fundarritari. Formaður flutti skýrslu stjórnar og kom m.a. fram hjá honum að síðasta ár hefði verið að mestu hefðbundið hvað störf stjórnar félagsins varðar. Haldnir voru átta stjórnarfundir og margir vinnufundir. Á starfsárinu fengu 8 byggingafræðingar löggildingu til þess að mega árita aðal- og byggingauppdrætti og 15 fengu leyfi til þess að mega kalla sig byggingafræðinga. Virkir félagar sem mega kenna sig við félagið með skammstöfuninni BFÍ eru nú um 150 en á skrá eru um 268. Ágúst Þór Gunnarsson gjaldkeri BFÍ las upp reikninga félagsins og voru þeir samþykktir. Berglind Björg Sigvaldadóttir var kjörinn formaður. Tillaga stjórnar að uppstillingu annarra stjórnarmanna var samþykkt. Júlíus Finnsson hættir sem formaður og aðrir sem hætta eru Kristinn Aðalbjarnarson, Sigurður Sverrir Gunnarsson og Halldór Arnarson og voru þeim þökkuð vel unnin störf. Endurskoðendur BFÍ voru endurkostnir en þeir eru Hjálmar Örn Guðmarsson, Sigurður Ólafsson og til vara Sveinn Björnsson. Tillaga stjórnar um óbreytt félagsgjald 10.000 kr. var samþykkt. Tillaga stjórnar um reglur um mat á byggingafræðingstitli og tillaga um siðareglur voru samþykktar.
Til baka


