16. september 2011

Tímaritið Arkitektúr

Kæri félagsmaður

Undanfarin ár hafa Arkitektafélag Íslands og Félag íslenskra landslagsarkitekta staðið að umfangsmikilli og metnaðarfullri útgáfu fagtímaritsins Arkitektúrs.



Stjórn BFÍ hefur samþykkt að styrkja þessa útgáfu í eitt skipti með því að taka tilboði þar sem boðin eru tvö blöð á verði eins og senda til byggingafræðinga sem greitt hafa árgjaldið í ár. Munu blöðin berast næstu daga.

Í eldra blaðinu er fjallaði m.a um vistvænar byggingar, umhverfisvottunarkerfi, hljóðvist og lýsingu út frá vistvænum sjónarmiðum, sjálfbært skipulag, sýningar og ráðstefnur sem tileinkaðar eru sjálfbærni. Nýjasta tölublað Arkitektúrs er að miklu leyti tileinkað hönnun ferðamannastaða. Fjallað er um nýjar byggingar  og önnur mannvirki á ferðamannastöðum en einnig eru kynnt  til sögunnar eldri verkefni og athugað hvernig þau hafa staðist tímans tönn. Þá er arkitektasamkeppnum gerð góð skil, auk þess sem fjallað er um tilnefningu til Mies van der Rohe verðlaunanna. Töluverð útgáfa hefur átt sér stað á fagbókmenntum á sviði arkitektúrs síðastliðin ár og er þeim gerð góð skil í þessu blaði með bókaumfjöllunum. Auk þessa er svo efni sem setur hönnun á Íslandi í samhengi við það sem er að gerast í nágrannalöndum okkar. 

 

Er það von stjórnar BFÍ að þessi ákvörðun að senda félagsmönnum fagtímarit á okkar sviði mælist vel fyrir.

 

Bestu kveðjur

 

Stjórn BFÍ

Til baka