19. október 2011
Háskólinn í Reykjavík hefur útskrifað í fyrsta skipti Byggingafræðinga á Íslandi.
Háskólinn í Reykjavík hefur útskrifað í fyrsta skipti Byggingafræðinga á Íslandi.
Undanfarin 4 ár hefur verið kennd námsleið í Háskólanum í Reykjavík þar sem hægt hefur verið að nema Byggingafræði. Fyrir þann tíma var einungis hægt að fara erlendis til náms.
Stjórn Byggingafræðingafélags Íslands vill því bjóða:
Aðalsteinn Hallgrímsson, Birkir Kúld Pétursson, Friðrik H. Ólafsson, Friðrik Karl Weisshappel, Haraldur Birgir Haraldsson, Hjörleifur Sigurþórsson, Jóhann Harðarson, Magnús Sigfússon, Ólafur Ásmundsson, Reynir Þorvaldsson og Smári Skúlason
velkomna í ört stækkandi hóp byggingafræðinga á Íslandi, en þetta eru fyrstu nemendurnir sem útskrifast hér á landi með BS gráðu í Byggingafræði.
Til hamingju með áfangann.
-Stjórnin


