16. nóvember 2011

Samlokufundur 22.nóv. 2011, kl:17:00

Hvort sem það eru einhverjir með skerðingar eða fatlanir í fjölskyldu-, vina- og tengslanetinu þína eða ekki þá er gríðarlega mikilvægt að við hugum að aðgengi fyrir alla þegar við hönnum mannvirki.

Umfræðuefni á samlokufundi Byggingafræðingafélags Íslands 2. nóv. 2011, kl 17:00 að Engjateig 9, Kjallara:
 
Hvaða breytingum eigum við vin á í aðgengismálum með nýsettum mannvirkjulögum og væntanlegri byggingareglugerð?
 
Hver er staðan núna, aðgengislega séð, sé horft á Ísland sem ferðamannaland? GEtum við breytt einhverju?
 
Mikilvægi áreiðanlegra upplýsinga.

Aðgengismerkjakerfið Access Iceland.
 
Aðgengismerkjakerfi Access Iceland er hluti af Aðgengi ehf.
Auka skráninga í Aðgengismerkjakerfið býður Aðgengi ehf upp á ráðgjöf um aðgengi
fyrir fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga.
Ráðgjöfin felst meðal annars í teikningrýni fyrir hönnuði og sveitarfélög en miklu
máli skiptir að aðgengismál séu strax tekinn inn í hönnunina því þá minka líkur á
kostnaðarsömum breytingum seinna meir.
 
Frumkvöðull og einn stofnanda Aðgengis ehf er Harpa Cilia Ingólfsdóttir Byggingafræðingur
BFí og ferilhönnður, en fyrirtækið hefur verið starfrækt síðan 2005.
Harpa er gift Jóhanni Pétri Sveinssyni heitnum, lögmanni og formanni Sjálfsbjargar
landssambands fatlaðra.
 
Loksins er möguleiki á að kortleggja ferðir hringinn í kringum ladið, með tilliti til
aðgengis, á einfaldan hátt. t.d. gisting, máltíðir og skoðunarferðir. Fyrir marga getur
jafnvel einfaldur hlutur eins og ,, á hvaða kaffihúsi eigum við að hittast?" reynst
þrautinni þyngri ef engar upplýsingar eru til staðar.
 
 
Tökum höndum saman og gerum Ísland aðgengilegt öllum
 
adgengi@adgengi.is
síma 662-2674
www.adgengi.is
www.AccessIceland.is
 
Til baka