12. desember 2011
Varðandi síðasta samlokufund okkar
Þann 22.nóvember síðastliðinn stóð byggingafræðingfélag Ísland fyrir samlokufundi varðandi aðgengismál fatlaðra. Það var mjög fámennt en góðir kollegar sem mættu til okkar á Engjateiginn, þáðu samlokur og drykkjaveigar.
Harpa Cilia Ingólfsdóttir Byggingafræðingur BFí og ferilhönnður var með fyrirlestur um aðgengismál, fyrirhugaðar breytingar á byggingareglugerð varðandi bætt aðgengi fatlaðra og svaraði spurningum úr sal í lokin. Harpa er frumkvöðull og einn stofnanda Aðgengis ehf. www.aðgengi.is
Stjórnin vill þakka þeim sem mættu kærlega fyrir komuna á þennan samlokufund og vonar innilega að fleiri sjái sé fært um að mæta á þann næsta sem verður auglýstur mjög fljótlega.
-Stjórnin


