25. janúar 2012

Námskeið í tilboðs og áætlanagerð

Í samvinnu við Matsmannafélag Íslands.

Markmiðið með námskeiðinu er að kynna ítarlega alla þá þætti við mat á byggingarkostnaði sem nauðsynlegir eru til þess að reikna út tilboð í verklegar framkvæmdir.

 
 
Kennd eru undirstöðuatriði í verkþáttagreiningu, gerð verklýsinga, magnmælingum, áætlun fyrir mannaflaþörf og útreikningum á byggingarkostnaði. Þjálfun er veitt í notkun á reikniaðferðum.

Tölvufærni metin svo hægt sé að ákvarða notkun á excel og word.
1.    Mannvirkjalög
2.    Lestur teikninga
3.    Byggingarstaður
4.    Verkþáttagreining
5.    Verklýsingar
6.    Magnmælingar og notkun eininga
7.    Mannaflaþörf og verktími
8.    Gerð einingaverða – beinn kostnaður og óbeinn kostnaður
9.    Kostnaður vinnu miðuð við mannþörf og verklýsingar
10.    Undirverktakar - álagning
11.    Verðupplýsingar á byggingarvörum og þjónustu
12.    Opinber gjöld og virðisaukaskattur
13.    Verksamningar
14.    Verkefni í tilboðsgerð

Námskeiðið er ætlað arkitektum, verk-, tækni- og byggingafræðingum og iðnmeisturum sem starfa við hönnun og mannvirkjagerð.

Skráningarfrestur er til 24. febrúar 2012

Kennari:  Ragnar Ómarsson byggingafræðingur ásamt gestafyrirlesurum sem fjalla um sérhæfð málefni.

Nánari upplýsingar um námskeiðið og skráning hér eða í síma 525 4444   
 
Endurmenntun Háskóla Íslands.
 
Til baka