Lög félagsins
1. grein
Félagið heitir Byggingafræðingafélag Íslands, skammstafað BFÍ, aðsetur þess er í Reykjavík.
2. grein
Markmið félagsins er að efla og bæta allt er snýr að mannvirkjagerð og umhverfi þeirra. Markmið félagsins er einnig að gæta hagsmuna byggingafræðinga á Íslandi, efla samstarf þeirra, kynningu félagsins út á við og stuðla að aukinni fræðslu félagsmanna.
Til að ná markmiðum sínum skal félagið taka virkan þátt í opinberri stefnumótun, umræðu um laga og reglugerðarsmíð og kynningu nýjunga á sviði umhverfis- og mannvirkjagerðar. Þá skal einnig stefnt að því að koma á almennum fræðslufundum.
3. grein
Félagsmenn geta þeir einir orðið er lokið hafa prófi frá skólum er mennta byggingafræðinga sem félagið viðurkennir.
Stjórnvöld senda beiðni um umsögn BFÍ þegar sótt er um leyfi til að mega nota starfsheitið byggingafræðingur sem er lögverndað. Stjórn BFÍ fer yfir innsend gögn og sendir jákvæða umsögn til stjórnvalda uppfylli gögnin sett skilyrði.
Nemar á 4. – 7. önn í byggingafræði við skóla sem félagið viðurkennir teljast aukafélagar með málfrelsi og tillögurétt en ekki atkvæðisrétt. Aukafélagar greiða ekkert árgjald.“
4. grein
Viðurkenning á skóla fer fram á stjórnarfundi að undangenginni ítarlegri athugun og skal hún hljóta samþykki félagsfundar.
5. grein
Stjórn BFÍ, í umboði félagsins, skal láta stjórnvöldum í té umsögn um félagsmenn til að þeir geti öðlast full réttindi er lög kveða á um hverju sinni.
6. grein
Félagsmenn hafa einir rétt til að kenna sig við félagið og nota skammstöfunina BFÍ með nafni sínu.
7. grein
Félagar skulu greiða árgjald skv. ákvörðun aðalfundar. Þó skulu allir stjórnarmenn (5+2) ásamt félagsmönnum er náð hafa 67 ára aldri vera gjaldfríir en halda fullum réttindum í félaginu.
8. grein
Öllum byggingafræðingum sem eru á skrá hjá félaginu nema þeim sem getið er í 7. grein skal sendur greiðsluseðill vegna innheimtu árgjalda. Gjalddagi árgjalda er 1. júní ár hvert, eindagi 30. júní en dráttarvextir reiknast frá 1. júlí.
9. grein
Þeir sem greiða árgjald hvers árs teljast félagsmenn það ár. Félagar sem ekki hafa greitt árgjald sitt 30. október teljast gengnir úr félaginu.
Óski félagsmaður að ganga úr félaginu skal hann senda stjórn BFÍ skriflega úrsögn.
10. grein
Félagsmaður er skyldur að taka kostningu til starfa í félaginu, nema gild forföll hamli, að dómi félagsfundar. Félagsmaður getur neitað endurkjöri jafnlangan tíma og hann hefur gengt starfi.
11. grein
Heimilt er að stofna innan félagsins sérdeildir, sem fjalla um:
a) Hagsmunamál félagsmanna.
b) Sérmál félagsmanna.
Lagaákvæði sérdeilda og breytingar á þeim skulu hljóta samþykki aðalfundar BFÍ á sama hátt og lög BFÍ. Allar þær samþykktir er áhrif geta haft á aðra félagsmenn skal bera undir stjórn BFÍ.
12. grein
Félagsdeildir mega ekki koma fram opinberlega, án samþykkis stjórnar BFÍ. Félagsdeildir skulu hafa sjálfstæðan fjárhag.
13. grein
Félaginu er heimilt að gefa út ársskýrslur, tímarit og þess háttar. Stjórn félagsins er heimilt að afhenda þessi gögn félagsmönnum að kostnaðarlausu.
14. grein
Allir sjóðir skulu vera í vörslu stjórnarinnar og skal hún sjá um að ávaxta þá á tryggan hátt. Um sérsjóði félagsins skulu samdar reglur og skal fjallað um þær eins og lög félagsins.
15. grein
Stjórn félagsins er heimilt að ráða framkvæmdastjóra, veita honum prókúru og henni ber að setja framkvæmdastjóra starfsreglur. Stjórn er heimilt að taka á leigu húsnæði fyrir starfsemi félagsins. Leiga húsnæðis og ráðning framkvæmdastjóra skal aðeins eiga sér stað að því gefnu að fjárhagur félagsins leyfi það.
16. grein
Aðalfundur hefur æðsta vald á öllum málum félagsins. Hann skal halda árlega fyrir 1. maí og boðaður félagsmönnum skriflega með viku fyrirvara.
Félagsfundi skal halda, þegar stjórnin telur þurfa eða 1/5 félagsmanna krefjast þess skriflega. Boði stjórin ekki slíkan fund innan viku, frá því að henni hefur borist krafan, geta þeir, sem fundar óska, sjálfir boðað til hans í nafni félagsins.
17. grein
Á aðalfundi skulu tekin fyrir þessi mál:
1. Skýrsla stjórnar um störf félagsins á liðnu ári.
2. Skýrsla stjórnar starfsmenntasjóðs.
3. Reikningsskil.
4. Skýrslur og tillögur þeirra vinnuhópa, er starfað hafa.
5. Tillögur félagsstjórnar.
6. Kjör félagsstjórnar.
7. Kjör endurskoðenda.
8. Ákvörðun félagsgjalda.
9. Önnur mál.
18. grein
Aðalfundur er löglegur sé rétt til hans boðað. Afl atkvæða ræður úrslitum.
Til breytinga á lögum félagsins þarf þá 2/3 atkvæða félaga sem sækja fundinn. Ef lagabreytinga er óskað á aðalfundi, skal þess getið í fundarboði, gildandi lagaákvæði og tillögur að breytingum þeirra skulu fylgja fundarboði.
19. grein
Aðalfundi stýrir kjörinn fundarstjóri, hann tilnefnir ritara. Fundargerðina skal bóka. Fundargerð síðasta aðalfundar skal liggja frammi á aðalfundi. Formaður stýrir öðrum fundum. Þó skal formanni heimilt að tilnefna mann í sinn stað, ef hann óskar þess.
20. grein
Stjórn félagsins er skipuð 5 mönnum. Formaður og stjórn skal kosinn til eins árs í senn. Í stjórn sitja auk formanns, fjórir meðstjórnendur ásamt tveim varamönnum. Kosning skal vera skrifleg ef um mótframboð er að ræða.
Í hverri stjórn skulu sitja minnst tveir aðalstjórnarmeðlimir fráfarandi stjórnar. Stjórnin kýs varaformann úr sínum hópi og skiptir með sér verkum. Forfallist formaður á kjörtímabilinu, skal varaformaður taka sæti hans. Varamenn skulu boðaðir á alla stjórnarfundi og hafa þeir tillögurétt.
21. grein
Endurskoðendur eru tveir og einn til vara. Þeir skulu kjörnir á aðalfundi til eins árs í senn. Við kjör stjórnar og endurskoðenda geta félagar, sem ekki geta sótt fund, sent skrifleg atkvæði sín undirrituð og vottfest.
22. grein
Stjórn félagsins hefur umboð til að skipa félagsmenn í vinnuhópa til sérverkefna, félagsmenn eru skuldbundnir til að sinna þeim störfum.
23. grein
Stjórn félagsins skal annars vegar halda skrá yfir félagsmenn og hins vegar halda skrá yfir alla byggingafræðinga með eftirfarandi upplýsingum: nafni, kennitölu, heimilisfangi, heimasíma, farsíma og heimanetfangi.
Stjórn félagsins skal halda skrá yfir fjölda þeirra sem hafa fengið löggildingu starfsheitis og fjölda þeirra sem hafa fengið löggildingu til að mega skrifa upp á aðaluppdrætti á starfsárinu og koma upplýsingum á framfæri í skýrslu stjórnar á aðalfundi.
24. grein
Félaginu verður því aðeins slitið, að félagsslitin séu samþykkt á sama hátt og gildir um lagabreytingar.
Félagsfundur tekur ákvörðun um ráðstöfun eigna félagsins.
25. grein
Lög þessi öðlast þegar gildi og þar með falla úr gildi lög félagsins frá apríl 1971.
Lög þessi voru samþykkt á aðalfundi BFÍ 20. apríl 1996.
1. Breytingar á 5. gr. og 6. gr. voru samþykktar á aðalfundi BFÍ 17. apríl 1999
2. Breyting á 3. gr. var samþykkt á aðalfundi BFÍ 15. apríl 2000
3. Breyting á 7. gr. var samþykkt á aðalfundi BFÍ 24. apríl 2004
4. Breytingar á 3. 5. 6. 8. 9. 13. 15. 17. og 23. grein voru samþykktar á aðalfundi BFÍ 29. apríl 2009


