Nokkur skjöl á vegum félagsins
Fréttabréf SFB
Reykjavík 28.febrúar. 2005
Ágætu byggingafræðingar!
Á félagsfundi stjórnar BFÍ á Fjörukránni þann 27. janúar síðastliðinn var stjórn SFB með stutta kynningu á því starfi sem unnið hefur verið að frá stofun og varpað var fram þeim möguleikum sem við sáum framundan og þeir þrír aðilar kynntir sem vænlegastir þóttu til samstarfs. Á þeim fundi var ákveðið að forgangsraða þessari vinnu og reyna til þrautar með samstarf við SV (Stéttarfélag Verkfræðinga). Stjórn SFB sendi síðan formlegt bréf þann 11.febrúar þar sem þess er farið á leit að Stéttarfélag Verkfræðinga taki að sér rekstur Stéttarfélags Byggingarfræðinga.
Orðrétt:
“Stjórn SFB hefur ákveðið að fara þess á leit við SV að það taki að sér rekstur SFB. Ganga hugmyndir okkar út á að félagsmenn okkar fái fulla aðild að orlofs- og sjúkrasjóðum félagsins sem og öðrum réttindum sem félagar í SV hafa innan stéttarfélagsins, eða á þeim grunni sem félögin koma sér saman um.
Það er skoðun okkar að rekstur SFB falli vel að kjarnastarfsemi SV sem mun leiða til jákvæðra samlegðaráhrifa af samrekstri félaganna”
Í stuttu máli þá var það samþykkt af stjórn SV að taka að sér rekstur Stéttarfélags Byggingarfræðinga að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Hefur stjórn SFB hafið vinnu að uppkasti að samstarfssamningi með stjórn SV og er fyrirhugað að bera hann upp á aðalfundi félagsins í apríl n.k. Vonandi getum við fagnað 1. árs afmæli félagsins með undirritaðan samstarfssamning í höndunum.
Vill stjórn SFB með bréfi þessu hvetja félagsmenn BFÍ til að fylgjast vel með gangi mála og alla þá sem hyggja á aðild að stéttarfélaginu að senda okkur umsókn sem fyrst á skrifstofu BFÍ, á netfangið: sfb@bfi.is eða til stjórnarmanna SFB.
Árgjald í SV er 14.400 kr: árið 2005.
Meðfylgjandi er umsóknareyðublað sem þið getið fyllt út og sent okkur.
Með félagskveðju.
Stjórn SFB.
Magnús Jónasson - netfang: magnusj@postur.is
Brynjar Einarsson - netfang: brynjarei@simnet.is
Meðstjórnandi: Sveinn Arnarsson


